Skilmálar
SKILMÁLAR SNYRTIVARA.IS
1. Almennt
Aðgangur og notkun netverslunarinnar Snyrtivara.is (netverslun) er háð eftirfarandi skilmálum. Ef þú ferð á vefsíðuna, skoðar eða leggur fram pöntun samþykkir þú þessa skilmála.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið snyrtivara@snyrtivara.is
Þessi vefsíða er í eigu og rekin af AVA ehf., kt. 600209-1160, Ásakór 4, 203 Kópavogur. VSK númer er 137540.
Snyrtivara.is áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við vefsíðuna og skilmála þessa án sérstakra tilkynninga. Skilmálarnir sem eru í gildi þegar pöntun er gerð, gilda um viðkomandi pöntun, með öllum þeim breytingum og viðaukum sem kunna að hafa verið gerðir á þeim. Skilmálarnir skulu vera í samræmi við landslög Íslands, tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins eftir því sem við á.
Þessi vefsíða kann einnig að tengjast öðrum vefsíðum sem eru ekki reknar af Snyrtivara.is. Snyrtivara.is hefur ekki stjórn á þeim síðum og tekur ekki ábyrgð á þeim né þeim skaða eða tjóni sem gæti orðið við notkun þeirra.
2. Persónuvernd
Snyrtivara.is leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna.
Snyrtivara.is leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlögin).
Snyrtivara.is leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem viðskiptavinir biðja um.
Snyrtivara.is leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um viðskiptavini og að sú vinnsla sé gerð á ábyrgan, öruggan og löglegan hátt.
Snyrtivara.is leggur áherslu á að allar upplýsingar um viðskiptavini sem látnar eru í té eða sóttar með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir biðja um.
Snyrtivara.is leggur áherslu á að viðskiptavinir Snyrtivara.is séu eigendur að sínum eigin persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki Snyrtivara.is og nauðsynlegum þriðju aðilum.
3. Kaupskilmálar
Snyrtivara.is samþykkir aðeins pantanir sem gerðar eru af vefsíðu fyrirtækisins. Ekki er hægt að taka á móti pöntunum í síma, tölvupóst eða með bréfapósti. Þjónusta á Facebook síðu Snyrtivara.is er háð þeim skilyrðum sem fram koma hér á eftir.
Til að leggja fram pöntun á vefsvæðinu verður þú að vera 16 ára, búsett/ur á Íslandi og/eða með íslenskt heimilisfang. Þú gefur upp afhendingar- og tengiliðsupplýsingar (eins og tölvupóstfang og farsímanúmer) í greiðsluferlinu.
Vörur sem eru settar í innkaupakörfuna eru ekki fráteknar fyrr en pöntunin er staðfest af Snyrtivara.is með pöntunarstaðfestingu sem er send á netfangið þitt.
Samningur og staðfesting á pöntun
Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni er kominn á bindandi samningur um kaup eftir að Snyrtivara.is hefur staðfest pöntunina á tölvupóstfangið sem þú gafst upp. (Pöntunarstaðfesting). Pöntunarstaðfestingin er send á netfangið þitt þegar Snyrtivara.is hefur skráð pöntunina og fengið greiðslu. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag kl. 18:00.
4. Verðlagning og gjaldmiðill
Verð eru sýnd í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er með vsk . Verð getur breyst og tilboð má afturkalla hvenær sem er.
Uppgefið verð við pöntun gildir um allt kaupferlið
5. Afsláttar- og kynningarkóðar
Snyrtivara.is getur tímabundið boðið kynningarverð og afslátt, með eða án kynningarkóða.
Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur.
Ekki er hægt að bæta við afslætti í pöntun eftir að hún er staðfest. Þess vegna þarf að tryggja að allar upplýsingar um slíkt séu skráðar áður en pöntun er staðfest og greidd. Snyrtivara.is tekur ekki ábyrgð á kynningum sem birtar eru á vefsíðum þriðja aðila.
Snyrtivara.is áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð eða kynningarkóða hvenær sem er.
Kynningarafslættir, aðrir afslættir eða kynningarkóðar í prentuðu eða stafrænu formi gilda ekki með öðrum tilboðum nema annað sé skýrt tekið fram. Snyrtivara.is áskilur sér því rétt til að ógilda pöntun viðskiptavinarins ef misnotkun af herferðum eða kynningum verður vart.
6. Greiðsla
Snyrtivara.is samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir:
Kredit- / debetkort
Þegar greiðsla er framkvæmd með kredit- eða debetkorti (VISA, Mastercard, Maestro eða American Express) er greiðslan skuldfærð þegar í stað og heimild fæst.
Allar greiðslur sem eru gerðar með kredit- eða debetkorti eru gerðar með öruggum greiðsluþjónustuveitanda (PSP) sem notar SSL (Secure Sockets Layer) í dulkóðuðu formi sem veitir viðskiptavinum öryggi í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðal PCI DSS .
Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til Snyrtivara.is, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. Snyrtivara.is ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimild.
Suma staðbundna kredit- / debetkortaútgefendur, t.d. DanCard (Danmörk) Carte Bleue (Frakkland), er einnig hægt að nota til að greiða pöntunina en Borgun hf. er færsluhirðir Snyrtivara.is og vísast til reglna þeirra um færsluhirðingu að öðru leyti.
Greiðsla með Netgíró.
Millifærsla
Snyrtivara.is býður upp á að lagt sé inn á reikning okkar.
AVA ehf.
Reikningsnúmer: 0537-26-005026
Kennitala: 600209-1160
Þegar greiðsla hefur verið innt af hendi og staðfesting send á netfangið snyrtivara@snyrtivara.is verður staðfestingarpóstur sendur til þín og þar með eru viðskiptin staðfest.
7. Afhending
Snyrtivara.is afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er.
Þegar pöntun er send frá vörugeymslu okkar færð þú senda staðfestingu með upplýsingum um hvernig á að fylgjast með sendingunni. Athugaðu að rekjanleiki er aðeins mögulegur á pöntunum sem sendar eru með Póstinum.
Ef afhendingu seinkar verulega eða í meira en 20 daga hefur þú heimild til að hætta við kaupin. Í slíku tilviki biðjum við þig að hafa samband við Snyrtivara.is
8. Skilaréttur
Skilafrestur er 30 dagar frá þeim degi sem pöntunin barst til þín.
Varan þarf að vera í uppunalegu ástandi ásamt öllum umbúðum og merkingum.
Útsöluvörum fæst hvorki skipt né skilað.
Hins vegar að því er varðar vörur sem eru gallaðar vísast í texta hér að neðan.
Hvernig á að skila vöru
Vinsamlegast sendu vörurnar sem þú vilt skila ásamt fylgiseðlinum (sem fylgdi pöntuninni) til Snyrtivara.is innan 30 daga frá þeim degi sem þú fékkst vörurnar á eftirfarandi heimilisfang:
Ava ehf.
Ásakór 4, 203 Kópavogur
Við mælum með að vörurnar séu sendar með Póstinum og þú geymir sönnunargögn um afhendingu og sendingarnúmer þar til kaupverð hefur verið endurgreitt.
Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur.
9. Endurgreiðslur
Ef vörur, sem hætt hefur verið við, eru sendar til baka með pósti greiðir viðskiptavinur sendingu.
Snyrtivara.is mun endurgreiða þér eins fljótt og auðið er.
Við munum endurgreiða með sama greiðslumáta og þú notaðir við upphafleg viðskipti, nema þú hafir samið sérstaklega um það með öðrum hætti. Enginn aukakostnaður leggst á endurgreiðsluna vegna skila eða ef hætt er við af hálfu Snyrtivara.is
10. Tilkynning um galla
Við skoðum vandlega hverja sendingu fyrir afhendingu til þín. Ef vörurnar eru samt sem áður rangar, skemmdar eða gallaðar við komu til þín, skal Snyrtivara.is ráða bót á gallanum án endurgjalds með því að skipta um slíkar vörur með nýjum vörum, án aukakostnaðar.
Ef um er að ræða rangar, skemmdar eða gallaðar vörur, ertu vinsamlegast beðin(n) um að hafa samband við okkur á snyrtivara@snyrtivara.is
11. Ábyrgð
Snyrtivara.is áskilur sér rétt til að falla frá afhendingu pöntunarinnar ef skýr og augljós verðvilla birtist á vefsíðunni (t.d. verð vörunnar virðist vera of hátt eða of lágt eða ef verð er gefið upp sem 0 kr.). Í slíku tilviki skal Snyrtivara.is tilkynna þér strax um villuna og leiðrétta verð.
Vörurnar sem seldar eru á Snyrtivara.is eru eingöngu ætlaðir til einkanota. Þú samþykkir að nota ekki vörurnar í viðskiptalegum tilgangi eða til endursölu og tökum ekki ábyrgð á tapi, hagnaði, truflun fyrirtækja eða missi viðskiptatækifæra. Óheimilt er að afrita, hlaða niður, geyma, senda eða annað af svipuðum toga sem tengist texta og myndum sem birtar eru á Snyrtivara.is í neinum tilgangi án skriflegs leyfis Snyrtivara.is. Snyrtivara.is er ekki ábyrgt fyrir neinum skekkjum í texta eða myndum. Snyrtivara.is ber enga ábyrgð á neinum töfum sem verða á afhendingu pantana vegna utanaðkomandi atburða, þ.mt en ekki takmarkað við stríð, flóð, eldsvoða, vinnudeilur, verkföll, uppþot, óeirðir, opinberar aðgerðir eða aðra svipaða atburði.
Snyrtivara.is leitast við að lýsa nákvæmlega vörum og myndum á Snyrtivara.is en það gætu verið minniháttar litabreytingar á milli mynda og raunverulegra vara vegna fjölda þátta eins og vafra sem er notaður eða litaskjástillinga. Snyrtivara.is er ekki ábyrgt fyrir mismunandi litum vegna fyrrnefndra þátta.
Snyrtivara.is á rétt á að trufla/stöðva notkun snyrtivara.is hvenær sem er, t.d. vegna viðhaldsaðgerða.
12. Breytingar á skilmálum.
Ef við ákveðum að breyta eða uppfæra skilmála okkar verður dagsetningu hér að neðan breytt.
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Snyrtivara.is á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Skilmálum var síðast breytt 25.05.2020